Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Gaman að sjá að þið eruð ennþá sömu drullusokkarnir!!
Passar ágætlega fyrir mig, er búinn að ætla að senda ykkur línu fyrir mörgum vikum síðan en það er svo mikil sól hérna að ég hef bara ekki getað setið við tölvuna. Hef kíkt annað slagið hérna inn og leyft mér að tárast og söknuði yfir kúk- og pisshúmornum sem aldrei virðist geta elst af alvöru karlmönnum, en hugga sjálfan mig um leið með einum ísköldum líters Cruzcampo (bjórtegund)sem kostaði 80 krónur, hehe. Gaman að fylgjast með ykkur héðan úr Spánarsólinni, langaði líka til að færa ykkur boðskapinn að við Katrin eignuðumst allt í einu dóttir núna 5 júni.(illa töff dagsetning 050607) Og því hangi ég heima núna, að drepast úr grobbi en hef bara engann til að grobbast við. Við komum heim 9 júli og stoppum í bænum í viku eða svo, rek kannski inn nefið svona til að taka í það..... Jæja, allavega bið að heilsa ykkur pésunum og ekki hætta þessu bloggrugli, þetta er snilld. Kveðja Gummi og Katrin. Jaén, Spáni
Gummi (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 10. júní 2007
Stórskemmtilegt skemmtiefni
Hæ, mjög gaman að þessari síðu hjá ykkur. Verð fastagestur hérna! MBK Vinkona-Lárussonar
Elín (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 11. maí 2007
Þverbrekknamúli 2007
Á ekki að setja inn myndir frá síðustu helgi piltar ? Eruð þið búnir að segja Arnari hvert hann fór um helgina.
Mummi frændi (Óskráður), þri. 20. mars 2007
Bryndís póstur
Stórgóð síða og ekki er myndefnið lakara,einnig er frjáls menning stórgott lag. En hver af ykkur faldi sig, það eru bara 6 ungherrar með mér á myndinni
Bryndís Björnsdóttir (Óskráður), fös. 9. mars 2007
Góðan daginn.............
Frjáls menning dúndur gott lag,og ekki er nú komið að tómum kofanum í ljóðlystinni:)
Nanna (Óskráður), mið. 7. mars 2007
fyrirgefið
væri gott að fá uppl. um hvernig á að setja inn mynd á þetta kerfi.Pínu lélegur í þessu blogg dæmi.
., mið. 20. sept. 2006